14.06.2017 // Skriðmispillinn á Reykjum var tekinn á gegn á vordögum. Safnið var orðið alveg samvaxið og nokkuð mikið gras komið upp úr misplinum. Ekki var lengur hægt að aðgreina yrkin og ekki mikið gagn í safninu þannig. Það var því ákveðið að endurnýja hann duglega og hann klipptur alveg niður í lok maí og loks hreinsað vel í kringum hann. Aðgerðin tókst nokkuð vel og má sjá afraksturinn á myndunum hér fyrir neðan.
Yrkin eru augljóslega misjöfn og sum hafa ekki komið vel til. Áhugavert verður að flygjast með þeim í framhaldinu. Eitt yrki er áberandi fallegra en önnur, það er nafnlaust en kom frá garðplönturstöð Ingibjargar.