Skjólbelti framtíðar – plöntuval og samsetning
Verkefnið Skjólbelti framtíðar byggir á rannsóknum Yndisgróðurs sem gengur út að þróa heppilega samsetningu tegunda og sjálfbærar lausnir í uppbyggingu skjólbelta fyrir íslenskar aðstæður. Meginmarkmiðið er að finna bestu hentugu skjólbeltaplöntur sem völ er á fyrir íslenskar aðstæður, gera fyrirmyndarskjólbelti og miðla upplýsingum um tegundir og fyrirkomulag.
Litlar rannsóknir hafa verið gerðar á tegundavali í skjólbeltarækt, nema helst með víði. Gagnsemi skjólbelta er þó vel þekkt og hefur skipulögð skjólbeltarækt verið stunduð á Íslandi í rúmlega hálfa öld. Þá hefur mest verið notast við víði sem er frumherjategund og kemur því fljótt til. Hann hefur þó vissa galla, endist stutt i ræktun, er ásetinn af skordýrum og sveppasjúkdómum og þolir illa samkeppni um birtu og næringu frá öðrum gróðri.
Til að tegundir geti talist hentugar í ræktun skjólbelta þurfa þær m.a. að uppfylla kröfur um:
- samvist með öðrum tegundum og hversu vel þær henta við uppbyggingu á skjólbeltum
- harðgeri, þær þurfa að þola veðráttuna sem einkennir íslenskar aðstæður
- langlífi og úthald/endingu
- heilbrigði
- formgerð t.d. hvort tegund sé þéttur runni og geti vaxið undir trjám
- runnar þurfa að vera skuggþolnir
Yndisgróður lét gróðursetja í lítið skjólbelti við tilraunahúsið á Hvanneyri vorið 2014. Út frá því, og byggt á rannsóknum Yndisgróðurs, var gerður listi yfir tegundir og yrki sem þóttu hentugar í skjólbelti og útbúið lítið sýnibelti á Hvanneyri.
Hér má nálgast uppdrátt og plöntulista fyrir skjólbeltið á Hvanneyri.
Hér má nálgast skýrslu um verkefnið: Skjólbelti framtíðar.
Hér má nálgast kynningu Samsonar Bjarnars Harðarsonar frá fagráðstefnu skógræktar 2016.